Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Austurlands

Héraðsdómur Austurlands starfar samkvæmt lögum nr. 15/1998. 

Skrifstofa dómstólsins er opin frá kl. 9.00 til 12.00 og 13.00 til 16.00 alla virka daga að Lyngási 15, Egilsstöðum. 
Dómstjóri er Hildur Briem. 

Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.

Umdæmi Héraðsdóms Austurlands er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010.
Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Borgarfjarðarhreppur, Breiðdalshreppur, Djúpavogshreppur, Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað, Fljótsdalshreppur, Seyðisfjarðarkaupstaður, Sveitarfélagið Hornafjörður og Vopnafjarðarhreppur.  

Þingstaður: Héraðsdómur Austurlands, Lyngási 15, Egilsstöðum.

Regluleg dómþing í einkamálum eru 1. og 3. þriðjudag hvers mánaðar kl. 14.00.

Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.

Nýir dómar

2. febrúar 2012
S-95/2011 Héraðsdómur Austurlands
Hildur Briem héraðsdómari

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás, sbr 1. mgr. 217. gr. alm. hgl. og dæmdur til greiðslu skaða- og miskabóta.

16. janúar 2012
E-45/2011 Héraðsdómur Austurlands
Hildur Briem héraðsdómari

Stefnda sýknuð af kröfum sveitarfélags um greiðslu reikninga vegna búfjáreftirlits á grundvelli laga nr. 103/2002, um búfjárhald o.fl.

5. janúar 2012
E-41/2011 Héraðsdómur Austurlands
Hildur Briem héraðsdómari

Fallist á kröfu skipverja um laun í veikindaorlofi á grundvelli 1. og 2. mgr. 36. gr. sjómannalaga nr. 35/1985.

4. janúar 2012
E-78/2011 Héraðsdómur Austurlands
Hildur Briem héraðsdómari

Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda vangoldna húsaleigu samkvæmt tímabundnum leigusamningi um íbúðarhúsnæði.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmisskipting Héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd

Héraðsdómur Austurlands