Velkomin á heimasíðu dómstólaráðs
Dómstólaráð fer með yfirstjórn stjórnsýslu héraðsdómstólanna. Ráðið starfar samkvæmt dómstólalögum nr. 15/1998.
Helstu verkefni dómstólaráðs samkvæmt lögunum er stjórnun fjárreiða héraðsdómstólanna, setning samræmdra reglna fyrir þá, ákvarðanir um fjölda dómara og annarra starfsmanna við hvern héraðsdómstól, söfnun upplýsinga um fjölda og afgreiðslu mála en almennt ber ráðinu að stuðla að því að gætt sé skilvirkni og hraða við rekstur dómsmála. Dómstólaráð fer með forsvar héraðsdómstólanna sameiginlega gagnvart stjórnvöldum og öðrum. Þá annast dómstólaráð símenntun héraðsdómara. Verkefni dómstólaráðs eru ekki tæmandi talin í dómstólalögunum en sem dæmi um önnur verkefni sem ráðið hefur sinnt eru tölvu- og upplýsingamál héraðsdómstólanna, samstarf við yfirstjórnir dómstóla á Norðurlöndum og símenntun annarra starfsmanna en dómara og löglærðra aðstoðarmanna.
Nýir dómar
3. febrúar 2012 E-2983/2010 Héraðsdómur Reykjavíkur
Kolbrún Sævarsdóttir settur héraðsdómari
Kolbrún Sævarsdóttir settur héraðsdómari
M dæmd forsjá barns.
3. febrúar 2012 A-34/2011 Héraðsdómur Suðurlands
Sigurður G. Gíslason héraðsdómari
Sigurður G. Gíslason héraðsdómari
Hafnað kröfu gerðarbeiðanda um að leigutaki verði borinn út úr íbúð.
2. febrúar 2012 S-1287/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Sakfellt fyrir þjófnað og tilraun til þjófnaðar. Refsing ákveðin 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár. Bótakrafa féll niður vegna útivistar.
2. febrúar 2012 S-1598/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Sakfellt fyrir þjófnað. Skilorðsrof. Refsing ákveðin 5 mánaða fangelsi. Bótakröfu var vísað frá dómi.
Fréttir
Greinar
Heimasíður dómstólanna
Leit
Mynd












