Beint á leiðarkerfi vefsins
Dómstólaráð Íslands

Velkomin á heimasíðu dómstólaráðs

Dómstólaráð fer með yfirstjórn stjórnsýslu héraðsdómstólanna. Ráðið starfar samkvæmt dómstólalögum  nr. 15/1998.

Helstu verkefni dómstólaráðs samkvæmt lögunum er stjórnun fjárreiða héraðsdómstólanna, setning samræmdra reglna fyrir þá, ákvarðanir um fjölda dómara og annarra starfsmanna við hvern héraðsdómstól, söfnun upplýsinga um fjölda og afgreiðslu mála en almennt ber ráðinu að stuðla að því að gætt sé skilvirkni og hraða við rekstur dómsmála. Dómstólaráð fer með forsvar héraðsdómstólanna sameiginlega gagnvart stjórnvöldum og öðrum. Þá annast dómstólaráð símenntun héraðsdómara. Verkefni dómstólaráðs eru ekki tæmandi talin í dómstólalögunum en sem dæmi um önnur verkefni sem ráðið hefur sinnt eru tölvu- og upplýsingamál héraðsdómstólanna, samstarf við yfirstjórnir dómstóla á Norðurlöndum og símenntun annarra starfsmanna en dómara og löglærðra aðstoðarmanna.

Nýir dómar

3. febrúar 2012
E-2983/2010 Héraðsdómur Reykjavíkur
Kolbrún Sævarsdóttir settur héraðsdómari

M dæmd forsjá barns.

3. febrúar 2012
A-34/2011 Héraðsdómur Suðurlands
Sigurður G. Gíslason héraðsdómari

Hafnað kröfu gerðarbeiðanda um að leigutaki verði borinn út úr íbúð.

2. febrúar 2012
S-1287/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir þjófnað og tilraun til þjófnaðar. Refsing ákveðin 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár. Bótakrafa féll niður vegna útivistar.

2. febrúar 2012
S-1598/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir þjófnað. Skilorðsrof. Refsing ákveðin 5 mánaða fangelsi. Bótakröfu var vísað frá dómi.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Skýrsla unnin af Gunnar H. Kristinssyni fyrir dómstólaráðUmdæmisskipting dómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd