Beint á leiðarkerfi vefsins
Dómstólaráð Íslands

Fréttir dómstólaráð

12.3.2012

Setning héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur

Barbara Björnsdóttir hefur verið sett til að gegna embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 9. mars 2012 til og með 31. ágúst 2012 í leyfi Sigríðar Ingvarsdóttur héraðsdómara. Einnig hefur Ingibjörg Þorsteinsdóttir verið sett til að gegna embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 9. mars 2012 til og með 31. október 2012 í leyfi Allans V. Magnússonar héraðsdómara. 

27.2.2012

Skipun héraðsdómara

Innanríkisráðherra hefur skipað Kolbrúnu Sævarsdóttur og Þórð S. Gunnarsson í embætti  héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. mars 2012.

17.2.2012

Breyting á dómumdæmum

Í kjölfar sameiningar sveitarfélaganna Bæjarhrepps og Húnaþings vestra sbr. reglugerð nr. 104/2012 heyrir dómumdæmi hins sameinaða sveitarfélags, Húnaþings vestra, til umdæmis Héraðsdóms Norðurlands vestra.

 

6.10.2011

Nýr dómstjóri við Héraðsdóm Austurlands

Hildur Briem hefur verið skipuð héraðsdómari með fast sæti við Héraðsdóm Austurlands og hefur hún jafnframt verið skipuð dómstjóri við embættið til næstu fimm ára. Hildur gengdi áður starfi aðstoðarmanns dómara við Héraðsdóm Austurlands.  

4.10.2011

Dómari settur við Héraðsdóm Reykjavíkur

Sigríður Hjaltested hefur verið sett héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur í leyfi dómara frá og með 1. október til og með 31. desember 2011.

28.9.2011

Nýr framkvæmdastjóri dómstólaráðs

Elín Sigrún Jónsdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri dómstólaráðs og hefur Ólöf Finnsdóttir, skrifstofustjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, verið ráðin nýr framkvæmdastjóri ráðsins. Ólöf mun koma að fullu til starfa hjá ráðinu 1. desember en mun fram að því sinna starfi framkvæmdastjóra í hlutastarfi.

1.9.2011

Nýr héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur

Halldór Björnsson héraðsdómari hefur fengið flutning til Héraðsdóms Reykjavíkur frá og með 1. september 2011. Halldór var dómstjóri við Héraðsdóm Austurlands.

1.9.2011

Dómarar settir við Héraðsdóm Reykjavíkur

Barbara Björnsdóttir hefur verið sett í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. september 2011 til og með 29. febrúar 2012 í leyfi Ingveldar Einarsdóttur, héraðsdómara. Einnig hefur Hrannar Már Sigurðsson Hafberg verið settur í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 5. september til og með 31. desember 2011 í leyfi Sigríðar Ingvarsdóttur. Þá hefur og setning Kobrúnar Sævarsdóttur verið framlengd frá og með 1. september til og með 31. desember 2011.

1.9.2011

Héraðsdómari settur við Héraðsdóm Austurlands

Hildur Briem hefur verið sett héraðsdómari við Héraðsdóm Austurlands frá 1. september til og með 15. október 2011, á meðan nefnd um hæfni dómara er að störfum og gengið hefur verið frá skipun í embættið en Halldór Björnsson sem verið hefur dómstjóri við embættið hefur flutt sig um set og verður héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. september 2011.

13.7.2011

Skýrsla um stjórnsýslu dómstólanna

Dómstólaráð hefur gefið út skýrslu dr. Gunnars Helga Kristinssonar prófessors, um stjórnsýslu dómstólanna en skýrsluna vann hann að beiðni ráðsins. Skýrsluna má sjá í heild sinni á heimasíðu dómstólaráðs.

 


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Skýrsla unnin af Gunnar H. Kristinssyni fyrir dómstólaráðUmdæmisskipting dómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða » Fréttir

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd