Beint á leiðarkerfi vefsins
Vefur Dómstólaráðs og héraðsdómstólanna á Íslandi

Fréttir

11.5.2012

Dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur

Setning Helga I. Jónssonar, dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, sem dómara við Hæstarétt Íslands hefur verið framlengd frá 1. júní til og með 31. ágúst 2012. Á meðan gengir Eggert Óskarsson varadómstjóri embætti dómstjóra við Héraðsdóm Reykjavíkur.

12.3.2012

Setning héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur

Barbara Björnsdóttir hefur verið sett til að gegna embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 9. mars 2012 til og með 31. ágúst 2012 í leyfi Sigríðar Ingvarsdóttur héraðsdómara. Einnig hefur Ingibjörg Þorsteinsdóttir verið sett til að gegna embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 9. mars 2012 til og með 31. október 2012 í leyfi Allans V. Magnússonar héraðsdómara. 

27.2.2012

Skipun héraðsdómara

Innanríkisráðherra hefur skipað Kolbrúnu Sævarsdóttur og Þórð S. Gunnarsson í embætti  héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. mars 2012.

24.1.2012

Dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur í leyfi

Setning Helga I. Jónssonar, dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, sem dómara við Hæstarétt Íslands hefur verið framlengd frá 1. febrúar til og með 31. maí  2012. Á meðan gengir Eggert Óskarsson varadómstjóri embætti dómstjóra við Héraðsdóm Reykjavíkur.

16.1.2012

Dómstjóri settur við Héraðsdóm Vesturlands

Allan V. Magnússon héraðsdómari hefur verið settur dómstjóri við Héraðsdóm Vesturlands frá og með 15. janúar 2012.

5.1.2012

Dómarar settir við Héraðsdóm Reykjavíkur

25.11.2011

Dómari settur við Héraðsdóm Reykjavíkur

Sigríður Elsa Kjartansdóttir hefur verið sett héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 25. nóvember til og með 31. janúar 2012.

14.11.2011

Rekstrar- og mannauðsstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur

Friðrík Þ. Stefánsson hefur verið ráðinn rekstrar- og mannauðsstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur. Hann tekur við starfinu af Ólöfu Finnsdóttur, skrifstofustjóra embættisins, sem ráðin hefur verið framkvæmdastjóri dómstólaráðs.

14.11.2011

Dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur í leyfi

Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, hefur verið settur dómari við Hæstarétt Íslands frá 10. nóvember til og með 31. janúar 2012. Á meðan mun Eggert Óskarsson varadómstjóri gegna embætti dómstjóra við Héraðsdóm Reykjavíkur.

1.11.2011

Dómstjóri Héraðsdóms Vesturlands í leyfi

Benedikt Bogason, dómstjóri Héraðsdóms Vesturlands, verður í leyfi frá dómstólnum frá 1. nóvember til og með 31. desember 2014 en hann hefur verið settur dómari við Hæstarétt Íslands þann tíma. Þar til gengið hefur verið frá setningu nýs dómstjóra við dómstólinn mun Hjörtur O. Aðalsteinsson, dómstjóri við Héraðsdóm Suðurlands, sinna starfi dómstjóra við Héraðsdóm Vesturlands samhliða starfi sínu.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða » Fréttir

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd