Beint á leiðarkerfi vefsins
Vefur Dómstólaráðs og héraðsdómstólanna á Íslandi

Fréttir

15.5.2009

Tímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna

Lög um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði taka gildi í dag, 15. maí. Með lögunum getur eigandi íbúðarhúsnæðis leitað eftir greiðsluaðlögun vegna skulda sem tryggðar eru með veði í húsnæði hans, ef hann sýnir fram á að hann sé og verði um einhvern tíma ófær um að standa í fullum skilum á greiðslum. Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur tekið að sér að annast upplýsingagjöf um úrræðið.

Áður en einstaklingur óskar eftir tímabundinni greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna verður hann að hafa leitað annarra tiltækra greiðsluerfiðleikaúrræða sem í boði eru hjá lánastofnunum og sýna fram á að þau úrræði hafi reynst ófullnægjandi. Sé svo getur hann óskað eftir greiðsluaðlöguninni með því að senda skriflega beiðni til héraðsdómstóls í því umdæmi þar sem hann á lögheimili. Taki héraðsdómari beiðnina til greina skal hann skipa umsjónarmann með greiðsluaðlöguninni. Viðkomandi greiðir þá aðeins þær greiðslur af lánum sem talið er að hann geti staðið straum af. Frestað er greiðslu þess hluta skuldbindinga sem eftir eru svo lengi sem greiðsluaðlögun stendur, sem getur verið í allt að fimm ár.

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna mun annast upplýsingagjöf um úrræðið. Hægt er að hafa samband þangað símleiðis, sími 551-4485, en á vef hennar, www.rad.is, er einnig að finna greinargóðar upplýsingar.

Sjá nánari upplýsingar hér.

 


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða » Fréttir

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd