Greinar
Hugleiðing um refsiákvarðanir
Freyr Ófeigsson sem nýverið lét af störfum sem dómstjóri við Héraðsdóm Norðurlands eystra hefur sent Dómstólaráði eftirfarandi hugleiðingar til birtingar á vef dómstólanna.
Sýknudómar í kynferðisbrotamálum.
Nokkuð hefur borið á misskilningi í umfjöllun í netheimum þegar kemur að umfjöllun um sýknudóma í kynferðisbrotamálum. Nýlega hafa fallið tveir héraðsdómar þar sem um var að ræða unglinga sem bæði meinta gerendur og þolendur brotanna. Ekki tókst að sanna í þessum tilvikum að ákærðu væru sekir um nauðgun eins og henni er lýst í almennum hegningarlögum, en ákært var fyrir brot gegn 194., 195., og 196. gr. almennra hegningarlaga í þessum málum.
Með því að ákærðu voru sýknaðir af nauðgun í þessum málum er fjarri því að verið sé að gefa til kynna að slík háttsemi sem lýst er í þessum málum sé góð og gild, það eina sem niðurstaðan segir til um er að ekki hafi tekist í þessum tilvikum að sanna að brotið hafi verið gegn tilteknum ákvæðum laga.
Allt annað mál er svo hvaða skoðun menn hafa á því athæfi sem lýst er í þessum dómsmálum en alveg ljóst að það er ekki hlutverk dómstólanna eða einstakra dómara að tjá skoðun sína á því.
12. júní 2007
Vefbirtingar dóma og umfjöllun fjölmiðla um dómsmál
Nú er liðlega ár liðið frá því hafið var að birta héraðsdóma hér á vefnum. Þrátt fyrir ýmsa byrjunarörðugleika hefur verkefnið gengið vel og mælst vel fyrir og aukast heimsóknir á vefinn jafnt og þétt. Þannig voru heimsóknir á vefinn í nýliðnum maímánuði yfir 41.000.
Einn megintilgangur þess að birta dóma er að gefa hinum almenna borgara kost á að kynna sér milliliðalaust dómstniðurstöður í hinum ýmsu málum, en þurfa ekki að treysta á fjölmiðlaumfjöllun, frekar en þeir sjálfir kjósa.
Aðgangur að dómstólum og viðfangsefni þeirra
Aðgangur að dómstólum. Samkvæmt stjórnarskrá ber öllum réttur til að fá úrlausn um réttindi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér ...
Sakamál. Sakamál eru mál sem ákæruvaldið (lögreglustjórar - ríkislögreglustjóri - ríkissaksóknari) höfðar á hendur sökuðum manni til refsingar. ...
Vanhæfir dómarar?
Í almennri umfjöllun um dómsmál er stundum sagt frá því að dómarar séu vanhæfir í tilteknum málum. Nokkuð hefur borið á þeim skilningi að í slíkum tilvikum sé um að ræða einhvern mælikvarða á það hversu vel dómarar séu starfi sínu vaxnir eða hve færir þeir séu í starfi. Þetta er auðvitað alrangur skilningur og ófært að skilja lögfræðilega hugtakið vanhæfi þannig að það þýði að viðkomandi sé á einhvern hátt óhæfur til að sinna starfi sínu, eins og almennur málskilningur gæti gefið til kynna.
Skýrslutökur af börnum fyrir dómi
Dómstólunum er yfirleitt ekki ætlað að koma að málum sem eru til meðferðar hjá lögreglu á rannsóknarstigi. Á þessari meginreglu eru þó undantekningar sem meðal annars eru tilkomnar vegna breytinga sem gerðar voru á lögum um meðferð opinberra mála á árinu 1999. Samkvæmt þeim er lögreglu skylt við rannsókn á meintu kynferðisbroti að leita til dómara með beiðni um að skýrsla verði tekin af brotaþola ef hann er yngri en 18 ára þegar rannsókn málsins hefst.
Um skipun héraðsdómara
Samantekt sú sem hér fer á eftir er að hluta til byggð á grein Sigríðar Ingvarsdóttur, héraðsdómara, sem birtist í Tímariti lögfræðinga, 4. hefti, 54. árgangi, í desember 2004: Um dómsvaldið, faglegt mat á hæfni dómara og hlutverk dómstóla í réttarríkinu.
Í dómsalnum - Ákærði
Um réttarstöðu ákærða (sakbornings) eftir að sakamál hefur verið höfðað gegn honum er fjallað í lögum um meðferð opinberra mála nr. 19, 1991.
Í dómsalnum - Vitni
Meginreglur um vitni er að finna í lögum um meðferð einkamála nr. 91, 1991 og lögum um meðferð opinberra mála nr. 19, 1991 í VIII. kafla beggja laganna.
Í dómsalnum - Hver er hvað?
Dómþing í héraðsdómstólum landsins fara fram í sérútbúnum dómsölum. Í Héraðsdómi Reykjavíkur eru 10 dómsalir, misstórir en allir með sömu grundvallaruppbyggingu. Allir héraðsdómstólar utan Reykjavíkur ná yfir fleiri dómþinghár og dómþing háð á fleiri en einum stað.
Sækjendur mála eru dómurum til hægri handar og verjendur þeim til vinstri handar þegar dómþing er haldið. Langoftast er dómari einn, en samkvæmt sérstökum heimildum í lögum er heimilt að hafa dóm fjölskipaðan.
Heimasíður dómstólanna
Leit
Mynd











