Greinar
Vefbirtingar dóma og umfjöllun fjölmiðla um dómsmál
Nú er liðlega ár liðið frá því hafið var að birta héraðsdóma hér á vefnum. Þrátt fyrir ýmsa byrjunarörðugleika hefur verkefnið gengið vel og mælst vel fyrir og aukast heimsóknir á vefinn jafnt og þétt. Þannig voru heimsóknir á vefinn í nýliðnum maímánuði yfir 41.000.
Einn megintilgangur þess að birta dóma er að gefa hinum almenna borgara kost á að kynna sér milliliðalaust dómsniðurstöður í hinum ýmsu málum, en þurfa ekki að treysta á fjölmiðlaumfjöllun, frekar en þeir sjálfir kjósa. Í langflestum tilvikum er umfjöllun fjölmiðla um dóma til fyrirmyndar og er örugglega hagræði falið í því fyrir þá sem um þetta fjalla að hafa greiðan aðgang að dómunum á netinu. Því er þó ekki að neita að komið hefur fyrir að misskilnings gæti í umfjöllun og jafnvel að farið sé beinlínis rangt með.
Annað sem hefur verið nokkuð í umræðunni eru berorðar lýsingar í dómum þar sem fjallað er um kynferðisbrotamál. Ljóst er að ekki verður hjá því komist að taka upp verknaðarlýsingar úr ákæru í dómi og rekja skýrslur ákærða og vitna og hefur ekki orðið breyting á þessu við það að dómar séu birtir á netinu. Hins vegar má segja að þeir verði þar með aðgengilegri öllum. Í reglum Dómstólaráðs um vefbirtingar dóma er gert ráð fyrir því að afmá skuli atriði sem eðlilegt er að leynt skuli fara m.t.t. einka- eða almannahagsmuna, sbr. 4. gr. Tilkynningar nr. 1/2006. Utan þess að gætt hefur verið nafnleyndar þar sem það á við, sbr. 3. gr. reglnanna, hefur ekki mikið verið máð úr textum dóma sérstaklega fyrir vefbirtinguna, en það er vissulega til athugunar.
7. júní 2007
Heimasíður dómstólanna
Leit
Mynd











