Beint á leiðarkerfi vefsins
Vefur Dómstólaráðs og héraðsdómstólanna á Íslandi

Greinar

Sýknudómar í kynferðisbrotamálum.

Nokkuð hefur borið á misskilningi í umfjöllun í netheimum þegar kemur að umfjöllun um sýknudóma í kynferðisbrotamálum. Nýlega hafa fallið tveir héraðsdómar þar sem um var að ræða unglinga sem bæði meinta gerendur og þolendur brotanna.  Ekki tókst að sanna í þessum tilvikum að ákærðu væru sekir um nauðgun eins og henni er lýst í almennum hegningarlögum, en ákært var fyrir brot gegn 194., 195., og 196. gr. almennra hegningarlaga í þessum málum.

Með því að ákærðu voru sýknaðir af nauðgun í þessum málum er fjarri því að verið sé að gefa til kynna að slík háttsemi sem lýst er í þessum málum sé góð og gild, það eina sem niðurstaðan segir til um er að ekki hafi tekist í þessum tilvikum að sanna að brotið hafi verið gegn tilteknum ákvæðum laga.

Allt annað mál er svo hvaða skoðun menn hafa á því athæfi sem lýst er í þessum dómsmálum en alveg  ljóst að það er ekki hlutverk dómstólanna eða einstakra dómara að tjá skoðun sína á því.

12. júní 2007


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða » Greinar

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd

Dómstólaráð og héraðsdómstólar á Íslandi