Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Norðurlands eystra

 

Héraðsdómur Norðurlands eystra starfar samkvæmt lögum nr. 15/1998.
Skrifstofa dómstólsins er opin frá kl. 9.00 til 16.00 alla virka daga
að Hafnarstræti 107, 4. hæð, Akureyri.
Dómstjóri er Ólafur Ólafsson.

Umdæmi Héraðsdóms Norðurlands eystra skiptist í tvær dómþinghár,
sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 395/1998.

Eftirtalin sýsluumdæmi heyra til umdæmis hans:

  1. Umdæmi sýslumannanna á Akureyri og Siglufirði.
    Þingstaður: Héraðsdómur Norðurlands eystra, dómsal B, Hafnarstræti 107, 4. hæð, Akureyri. Regluleg dómþing eru haldin á fimmtudögum kl. 13.30. 
  2. Umdæmi sýslumannsins á Húsavík. Þingstaður: Útgarður 1, Húsavík.  Regluleg dómþing  fyrsta miðvikudag hvers mánaðar kl. 13.30.

Hlé eru á reglulegum dómþingum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum ár hvert. Þá falla regluleg dómþing niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.

Leiðbeiningar til vitna sem hafa verið boðuð fyrir dóm má finna hér.

 

Nýir dómar

18. ágúst 2010
S-96/2010 Héraðsdómur Norðurlands eystra
Ólafur Ólafsson héraðsdómari

Ákærði sýknaður af kynferðisbrotum. Bótakröfu vísað frá dómi.

18. ágúst 2010
S-97/2010 Héraðsdómur Norðurlands eystra
Ólafur Ólafsson héraðsdómari

Ákærði var dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn ungmennum, en sýknaður að hluta. Dæmdur til að greiða miskabætur og helming sakarkostnaðar.

18. ágúst 2010
S-119/2010 Héraðsdómur Norðurlands eystra
Þorsteinn Davíðsson héraðsdómari

Maður sakfelldur fyrir eignaspjöll er hann kveikti í tveimur bifreiðum. Ekki talið sannað að almannahætta hafi skapast. Refsing ákveðin sex mánaða skilorðsbundið fangelsi

18. ágúst 2010
S-198/2010 Héraðsdómur Norðurlands eystra
Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari

X var dæmdur til að sæta fangelsi í 18 mánuði fyrir brot gegn 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd