Héraðsdómur Norðurlands eystra starfar samkvæmt lögum nr. 15/1998.
Skrifstofa dómstólsins er opin frá kl. 9.00 til 16.00 alla virka daga að Hafnarstræti 107, 4. hæð, Akureyri.
Dómstjóri er Ólafur Ólafsson.
Umdæmi Héraðsdóms Norðurlands eystra er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010.
Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Akureyrarkaupstaður, Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit, Fjallabyggð, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Langanesbyggð, Norðurþing, Skútustaðahreppur, Svalbarðshreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Tjörneshreppur og Þingeyjarsveit.
Þingstaður: Héraðsdómur Norðurlands eystra, dómsal B, Hafnarstræti 107, 4. hæð, Akureyri.
Regluleg dómþing í einkamálum eru haldin á fimmtudögum kl. 13.30.
Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.
Leiðbeiningar til vitna sem hafa verið boðuð fyrir dóm má finna hér.
Nýir dómar
30. janúar 2012 S-1/2012 Héraðsdómur Norðurlands eystra
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
Ungur maður sakfelldur fyrir fíkniefnaakstur og brot gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf. Sakaferill. Málsbætur.
26. janúar 2012 S-291/2011 Héraðsdómur Norðurlands eystra
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
Sakfellt fyrir ávana- og fíkniefnabrot og fíkniefnaakstur.
19. janúar 2012 S-293/2011 Héraðsdómur Norðurlands eystra
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
Sakfellt fyrir þjófnaðarbrot. Málsbætur
19. janúar 2012 S-290/2011 Héraðsdómur Norðurlands eystra
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
Ólafur Ólafsson héraðsdómari
Ungur maður sakfelldur fyrir þjófnað og umferðar- og fíkniefnabrot. Málsbætur
Fréttir
Greinar
Heimasíður dómstólanna
Leit
Mynd











