Héraðsdómur Norðurlands vestra starfar samkvæmt lögum nr. 15/1998. Skrifstofa dómstólsins er opin frá kl. 9.00 til 16.00 alla virka daga að Skagfirðingabraut 21, Sauðárkróki.
Dómstjóri er Halldór Halldórsson.
Umdæmi Héraðsdóms Norðurlands vestra skiptist í tvær dómþinghár,
sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 395/1998.
Eftirtalin sýslumannaumdæmi heyra til umdæmis hans:
- Umdæmi sýslumannsins á Sauðárkróki.
Þingstaður: Héraðsdómur Norðurlands vestra, Skagfirðingabraut 21, Sauðárkróki. Regluleg dómþing eru haldin 2. og 4. þriðjudag hvers mánaðar kl. 14.00. - Umdæmi sýslumannsins á Blönduósi.
Þingstaður: Skrifstofa sýslumanns, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi. Regluleg dómþing eru 1. miðvikudag hvers mánaðar kl. 14.00.
Hlé eru á reglulegum dómþingum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum ár hvert. Þá falla regluleg dómþing niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.
Nýir dómar
24. júní 2010 E-28/2010 Héraðsdómur Norðurlands vestra
Halldór Halldórsson dómstjóri
Halldór Halldórsson dómstjóri
Deila um landamerki milli jarða
10. júní 2010 E-178/2008 Héraðsdómur Norðurlands vestra
Halldór Halldórsson dómstjóri
Halldór Halldórsson dómstjóri
Iðnaðarmanni dæmdar bætur vegna tjóns sem hann varð fyrir þegar vinnupallur sem hann vann á hrundi.
7. júní 2010 E-119/2009 Héraðsdómur Norðurlands vestra
Halldór Halldórsson dómstjóri
Halldór Halldórsson dómstjóri
Forsjármál
21. apríl 2010 S-15/2010 Héraðsdómur Norðurlands vestra
Halldór Halldórsson dómstjóri
Halldór Halldórsson dómstjóri
Karlmaður sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni
Fréttir
Greinar
Heimasíður dómstólanna
Leit
Mynd











