Héraðsdómur Norðurlands vestra starfar samkvæmt lögum nr. 15/1998.
Skrifstofa dómstólsins er opin frá kl. 9.00 til 16.00 alla virka daga að Skagfirðingabraut 21, Sauðárkróki. Dómstjóri er Halldór Halldórsson.
Umdæmi Héraðsdóms Norðurlands vestra er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010. Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Akrahreppur, Blönduósbær, Húnavatnshreppur, Húnaþing vestra, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagafjörður og Sveitarfélagið Skagaströnd.
Þingstaður: Héraðsdómur Norðurlands vestra, Skagfirðingabraut 21, Sauðárkróki.
Regluleg dómþing í einkamálum eru haldin 2. og 4. þriðjudag hvers mánaðar kl. 14.00.
Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.
Nýir dómar
23. mars 2013 E-40/2012 Héraðsdómur Norðurlands vestra
Halldór Halldórsson dómstjóri
Halldór Halldórsson dómstjóri
Máli vísað frá dómi
27. febrúar 2013 S-58/2012 Héraðsdómur Norðurlands vestra
Halldór Halldórsson dómstjóri
Halldór Halldórsson dómstjóri
Sakfellt fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni
8. janúar 2013 S-56/2012 Héraðsdómur Norðurlands vestra
Halldór Halldórsson dómstjóri
Halldór Halldórsson dómstjóri
Sakfellt fyrir líkamsárás
4. desember 2012 S-57/2012 Héraðsdómur Norðurlands vestra
Halldór Halldórsson dómstjóri
Halldór Halldórsson dómstjóri
Saskfellt fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni
Fréttir
Greinar
Spurt og svarað
Heimasíður dómstólanna
Leit
Mynd











