Fréttir Héraðsdómur Norðurlands vestra
26.5.2009
Reglugerð um umdæmi héraðsdómstóla vegna sameiningar sveitarfélaga
Sveitarfélögin Fjallabyggð og Langanesbyggð heyra til umdæmis Héraðsdóms Norðurlands eystra samkvæmt nýrri reglugerð, nr. 473/2009 sem tekur gildi í dag, 26. maí 2009.
15.5.2009
Tímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Lög um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði tekur gildi í dag, 15. maí.
15.5.2009
Greiðsluaðlögun óveðtryggðra skulda
Með lögum nr. 24/2009 um breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991, sem tóku gildi 1. apríl sl., var einstaklingum gert kleift að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar við kröfuhafa sína með aðstoð umsjónarmanns. Þau lög taka til annarra krafna en veðskulda.
20.3.2006
Birting héraðsdóma á netinu
Nú er í fyrsta sinn hafin almenn birting héraðsdóma á netinu. Hæstiréttur Íslands hefur árum saman birt dóma sína á heimasíðu sinni og auk þess hefur Héraðsdómur Norðurlands eystra birt dóma sína lengi.
Heimasíður dómstólanna
Leit
Mynd











