Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Reykjaness

Héraðsdómur Reykjaness starfar samkvæmt lögum nr. 15/1998.


Afgreiðsla dómstólsins er opin virka daga frá kl. 8:30 - 16:00. Skiptiborðið er opið frá kl. 8:30 - 15:00

Dómstóllinn hefur aðsetur í dómhúsinu við Fjarðargötu 9, Hafnarfirði. Dómstjóri í námsleyfi Þorgeirs Inga Njálssonar er Finnbogi Alexandersson, héraðsdómari.

Umdæmi Héraðsdóms Reykjaness skiptist í tvær dómþinghár,
sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 395/1998.
Eftirtalin sýsluumdæmi heyra til umdæmis hans:
a. Umdæmi sýslumannanna í Hafnarfirði og Kópavogi.
Þingstaður: Héraðsdómur Reykjaness, Fjarðargötu 9, Hafnarfirði.
Regluleg dómþing eru haldin hvern miðvikudag kl. 9.00.
b. Umdæmi sýslumannsins í Keflavík.
Þingstaður: Skrifstofa sýslumanns, Vatnsnesvegi 33, Keflavík.
Regluleg dómþing eru haldin 2. og 4. miðvikudag hvers mánaðar kl. 14.00.

Hlé eru á reglulegum dómþingum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum ár hvert. Þá falla regluleg dómþing niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.

Nýir dómar

24. ágúst 2010
E-2077/2009 Héraðsdómur Reykjaness
Jón Höskuldsson héraðsdómari

Stefndu voru sýknaðir af skaðabótakröfu stefnanda vegna ætlaðs tjóns af veðsetningu íbúðar.

17. ágúst 2010
E-4029/2009 Héraðsdómur Reykjaness
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari

Forsendur fyrir tilboði í sundlaug og fleiri mannvirki, sem var óverðbætt á verktímanum, taldar hafa brostið vegna efnahagsástandsins á árinu 2008 og stefnda gert að greiða stefnanda verðbætur á tilboðsfjárhæðina frá mars 2008 til verkloka að frádregnum ætluðu fráviki vegna verðhækkana á verktímanum. Þá var gagnstefndi dæmdur til að greiða gagnstefnanda tafabætur. Var þeirri kröfu skuldajafnað á móti kröfu aðalstefnanda.

23. júlí 2010
E-3751/2009 Héraðsdómur Reykjaness
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari

Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda áunnin bónus eftir að honum var sagt upp störfum. Stefndi var sýknaður af skaðabóta- og miskabótakröfu stefnanda.

23. júlí 2010
E-5242/2009 Héraðsdómur Reykjaness
Jón Höskuldsson héraðsdómari

Stefndu voru sýknuð af kröfu stefnenda um skaðabætur eða afslátt vegna ætlaðra galla á fasteign.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd

Héraðsdómur Reykjanes