Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Reykjaness

Dómar

111
 [1]  2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 ...65 Næstu >>

2. febrúar 2012
S-1287/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir þjófnað og tilraun til þjófnaðar. Refsing ákveðin 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár. Bótakrafa féll niður vegna útivistar.

2. febrúar 2012
S-1598/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir þjófnað. Skilorðsrof. Refsing ákveðin 5 mánaða fangelsi. Bótakröfu var vísað frá dómi.

2. febrúar 2012
S-66/2012 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir þjófnað. Hegningarauki. Ákærða var ekki gerð sérstök refsing í málinu.

1. febrúar 2012
X-24/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari

Ágreiningur var um afturvirkni laga nr. 151/2010 um endurrútreikning á gengistryggðu láni þar sem skuldaraskipti höfðu orðið á greiðslutímabilinu. Talið var að fyrirmæli 7. mgr. 1. gr. laga nr. 151/2010 um að endurútreikningur skyldi miðaður við þá dagsetningu sem skuldaraskiptin fóru fram, skertu ekki stjórnarskrárbundin eignarétt nýs skuldara, né sviptu hann þeim réttindum og skyldum sem fylgdu veðskuldabréfinu við yfirtöku þess. Var krafa sóknaraðila um að endurútreikningur gagnvart varnaraðila yrði miðaður við yfirtökudag veðskuldabréfsins, tekin til greina.

1. febrúar 2012
A-239/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari

Ágreiningur um aðfararbeiðni á grundvelli nauðungarsölu.

23. janúar 2012
S-672/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari

Kona dæmd í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjársvik. Jafnframt var hún dæmd til að greiða skaðabætur.

20. janúar 2012
S-768/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Ákærði var sakfelldur fyrir tvær líkamsárásir og ítrekaðan ölvunar- og sviptingarakstur. Refsing ákveðin 12 mánaða óskilorðsbundið fangelsi. Jafnframt var ævilöng svipting ökuréttar hans áréttuð. Loks var ákærða gert að greiða brotaþola miskabætur.

20. janúar 2012
E-1197/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari

Stefndi sýknaður af kröfum stefnanda þar sem stefnandi hafði gert stefnda tilboð í verk og gegn mótmælum stefnda var ósannað að um annað hefði samist eftir að verkið var hafið.

20. janúar 2012
E-1274/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari

Máli vísað frá dómi í heild sinni vegna vanreifunar.

20. janúar 2012
E-1559/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari

Stefnda dæmd til að greiða stefnanda skuld. Varnir stefndu byggðu eingöngu á því að krafan væri fyrnd. Var ekki fallist á þá málsástæðu.

17. janúar 2012
S-992/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir minniháttar eignaspjöll.

17. janúar 2012
S-517/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari

Ákærði var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir fjársvik, skilasvik, meiriháttar brot gegn bókhaldslögum og stórfelld eignaspjöll.

17. janúar 2012
S-67/2012 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari

Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir brot gegn 157. gr. almennra hegningarlaga.

17. janúar 2012
S-1356/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir ræktun og vörslur á kannabisplöntum.

17. janúar 2012
S-1269/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir líkamsárás. Ákvörðun um refsingu frestað skilorðsbundið í tvö ár.

17. janúar 2012
S-1380/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir þjófnað.

17. janúar 2012
S-1382/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir ræktun og vörslur kannabisplantna og annarra fíkniefna.

10. janúar 2012
E-1849/2010 Héraðsdómur Reykjaness
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari

Stefnandi keypti fastegnir af stefndu. Þeir deildu um hvor þeirra ætti að greiða fasteignagjöld og brunatryggingu fram að afhendingu eignanna.

9. janúar 2012
S-1034/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari

Ákærði dæmdur til greiðslu sektar og sviptur ökurétti vegna líkamsárásar og fíkniefnaaksturs.

5. janúar 2012
S-1372/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari

Ákærði var dæmdur í 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir gripdeild, umferðarlagabrot, líkamsárás o.fl.

 [1]  2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 ...65 Næstu >>

Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða » Dómar

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd

Héraðsdómur Reykjanes