Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Reykjaness

Dómar

111

21. nóvember 2011
S-849/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Ákærði var talinn ósakhæfur og dæmdur til að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun vegna manndráps og líkamsárásar. Þá var hann dæmdur til að greiða skaðabætur.

18. nóvember 2011
S-504/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari

Ákærði dæmdur í 1 mánaðar skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökurétti í tvö ár fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga vegna umferðarslyss.

17. nóvember 2011
S-463/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari

Kona var ákærð fyrir fjárdrátt. Af hálfu ákæranda voru nokkrir ákæruliðir felldir niður undir rekstri málsins fyrir dómi. Konan játaði aðra ákæruliði og var hún dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.

17. nóvember 2011
S-1120/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari

Ákærðu dæmdir til greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um umgengni um nytjastofna sjávar, reglugerð um vigtun og skráningu sjávarafla lögum stjórn fiskveiða og reglugerð um afladagbækur.

14. nóvember 2011
S-1033/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari

Ákærði var dæmdur í níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið að hluta, fyrir líkamsárás skv. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Jafnframt var hann dæmdur til að greiða brotaþola skaðabætur.

14. nóvember 2011
S-383/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari

Menn dæmdir fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára dreng um borð í skipi. Sýknað var af tveimur ákæruliðum.

14. nóvember 2011
S-673/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari

Ákærði var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals, fjársvik og fíkniefnalagabrot.

14. nóvember 2011
E-38/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Jón Höskuldsson héraðsdómari

Felldur var úr gildi úrskurður áfrýjunarnefndar hugverkaréttinda á sviði iðnaðar frá 23. september 2010 um að hafna andmælum stefnanda við skráningu á vörumerkinu VINORELSIN. Þá var vörumerkjaskráning nr. 1128/2007 VINORELSIN felld úr gildi.

10. nóvember 2011
E-585/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari

Fyrrverandi fasteignasali dæmdur til að greiða banka skaðabætur á grundvelli verðmats sem hann gerði og staðfesti án þess að skoða eignina.

10. nóvember 2011
S-683/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari

Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisbrot.

9. nóvember 2011
E-609/2010 Héraðsdómur Reykjaness
Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri

K höfðaði málið til heimtu eftirstöðva kaupverðs fasteignar. HI og HH kröfðust sýknu vegna galla sem komið hefðu fram á eigninni. Undir rekstri málsins og á grundvelli matsgerðar sem stefndu öfluðu lækkaði K kröfu sína úr 3.200.000 krónum í 2.200.000 krónur. Endanlega krafa tekin til greina með 1.937.109 krónum.

4. nóvember 2011
E-115/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri

Deilt var um hvort komist hafi á skuldbindandi samningur á milli S og V um birtingu auglýsinga í blaði sem S gaf út og tiltekið endurgjald fyrir hana. Sýkna vegna umboðsskorts.

3. nóvember 2011
E-60/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari

Meiðyrðamál

1. nóvember 2011
S-800/2010 Héraðsdómur Reykjaness
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari

Sakfellt fyrir hlutdeild í þjófnaði.

31. október 2011
E-466/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri

Fjárkrafa á grundvelli frítökuréttar. Sýkna.

28. október 2011
S-770/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir kynferðisbrot.

28. október 2011
S-1010/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir þjófnað.

28. október 2011
S-998/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir fíkniefnalagabrot.

28. október 2011
S-993/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir húsbrot, líkamsárás og eignaspjöll.

28. október 2011
S-994/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir þjófnað.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða » Dómar

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd

Reykjanesviti