Dómar
1114. febrúar 2009 S-1377/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Ákærði var dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás. Skilorðsdómur tekinn upp og refsing ákveðin í einu lagi.
4. febrúar 2009 S-1040/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Ákærði var dæmdur í 9 mánaða fangelsi, skilorðsbundið að hluta, fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og ólöglegan vopnaburð.
4. febrúar 2009 E-1398/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri
Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri
Gerð var krafa um staðfestingu lögbanns, sem tók til vefsvæðisins www.torrent.is, og viðurkenningu á bótaskyldu. Þá hafði stefnandi einnig uppi tiltekna bannkröfu. Fallist var á kröfu um staðfestingu lögbannsins og framangreinda viðurkenningarkröfu.
2. febrúar 2009 S-1348/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Kona sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið án nægjanlegrar aðgátar inn á gangbraut með þeim afleiðingum að tveir gangandi vegfarendur, sem voru á leið yfir gangbrautina, urðu fyrir bifreiðinni og slösuðust. Refsing ákveðin 90.000 króna sekt.
28. janúar 2009 S-1087/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Karlmaður sakfelldur fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti, en sýknaður af broti gegn 219. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
21. janúar 2009 E-3145/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Málið var ekki höfðað á réttu varnarþingi. Frávísun.
14. janúar 2009 S-1013/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Ákærði neitaði því að hafa gerst sekur um ölvunarakstur og bar því við að hann hefði neytt áfengis eftir að hann ók bifreiðinni. Sakfellt.
13. janúar 2009 S-1106/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari
Ákærði dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir tilraun til nauðgunar
13. janúar 2009 E-945/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari
Deilt um verksamning aðal- og undirverktaka
9. janúar 2009 E-2221/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Stefnandi krafði stefndu um greiðslu fyrir vinnu við að setja upp eldhúsinnréttingu. Ósannað var að réttarsamband hefði stofnast milli aðila og var stefnda sýknuð vegna aðildarskorts.
9. janúar 2009 S-704/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Ungur maður var ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. alm. hgl. með því að hafa snúið upp á fingur konu með þeim afleiðingum að fingurinn brotnaði. Sakfellt en háttsemin heimfærð undir 219. gr. alm. hgl.
22. desember 2008 S-705/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Ákærði var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni. Skilorðsrof. Ítrekun.
22. desember 2008 S-1192/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri
Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri
A var sakfelldur fyrir innflutning á 2966 grömmum af amfetamíni, Út frá því var gengið að hann hafi tekið að sér að flytja efnin til landsins gegn niðurfellingu á skuld vegna kaupa hans á fíkniefnum.
22. desember 2008 E-2203/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Kröfu um frestun málsins hafnað og málinu vísað frá dómi.
22. desember 2008 E-1817/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari
Stefnandi var dæmdur til að greiða stefndu skaðabætur vegna tjóns er varð á búslóð sem var í geymsluhúsnæði sem stefnandi rekur.
19. desember 2008 E-1957/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Stefndi var dæmdur til greiðslu skaðabóta vegna mistaka í starfi sem löggiltur fasteignasali.
19. desember 2008 E-1305/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Deilt var um hvort samningur um þóknun vegna milligöngu stefnanda um kaup stefnda á fyrirtæki hefði komist á. Talið var sannað að slíkur samningur hefði komist á og voru kröfur stefnanda teknar til greina.
19. desember 2008 S-809/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari
Dæmdur í sekt fyrir brot gegn lögum um dýravernd.
19. desember 2008 S-1274/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari
Karlmaður dæmdur í 9 mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir innflutning á fíkniefnum. Játning.
18. desember 2008 E-1768/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari
Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari
Stefnandi krafði stefnda um greiðslu fyrir vinnu fyrirtækisins við bókhald, framtalsgerð og ársreikning, samtals að fjárhæð 654.877 krónur vegna tímabilsins frá ágúst til október 2007. Stefnu byggðu sýknukröfu sína á því að um hefði samist milli aðila að fyrir vinnuna skyldi greiða í allt 50.000 krónur á mánuði og þá byggði stefndi á því að hluti vinnunnar hefði aldrei verið inntur af hendi. Varakröfu sína um lækkun stefnukröfu byggði stefndi á því að skráðir tímar á verkið væru ekki í samræmi við umfang vinnunnar. Ósannað þótti að samið hefði verið um að 50.000 króna greiðslan væri fyrir alla þá vinnu, sem stefnt var vegna og þá var talið sýnt að vinnan hefði verið innt af hendi. Þá þótti dóminum ósannað að vinna stefnanda væri illa unnin. Var því fallist á kröfur stefnanda og stefndi dæmdur til greiðslu umstefndrar fjárhæðar með dráttarvöxtum auk málskostnaðar.
Heimasíður dómstólanna
Leit
Mynd











