Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Reykjaness

Dómar

111

1. febrúar 2008
E-2278/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari

Krafa stefndu um frávísun málsins var að hluta til tekin til greina. Þá var fallist á kröfu stefnanda um heimild til þinglýsingar stefnu.

1. febrúar 2008
S-666/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari

Sakfelld fyrir þjófnað, akstur undir áhrfum fíkniefna og meðferð ávana-og fíkniefna. Sæti fangelsi í 30 daga skilorðsb. í 2 ár, greiði 251.500 krónur í sekt og sæti upptöku á fíkniefnum.

1. febrúar 2008
S-72/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari

Sakfelldur fyrir framvísun á fölsuðu vegabréfi. Sæti fangelsi í 30 daga.

31. janúar 2008
S-31/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari

Sakfelld fyrir þjófnað. Sæti fangelsi í 30 daga skilorðsb. í 2 ár.

31. janúar 2008
S-24/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Guðmundur L. Jóhannesson héraðsdómari

Sakfelldur fyrir nytjastund og umferðarlagabrot. Sæti fangelsi einn mánuð skilorðsb. í 2 ár og greiði 80.000 krónur í sekt.

31. janúar 2008
S-726/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Guðmundur L. Jóhannesson héraðsdómari

Sakfelldur fyrir þjófnað og umferðarlagabrot. Sæti fangelsi í 1 mánuð skilorðsb. í 2 ár. Sviptur ökurétti í 2 mánuði og greiði auk þess allan sakarkostnað.

31. janúar 2008
S-1159/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Guðmundur L. Jóhannesson héraðsdómari

Sakfelldur fyrir líkamsárás. Sæti fangelsi í 45 daga skilorðsb. í 2 ár. Greiði allan sakarkostnað, málsvarnarlaun til verjanda og skaðabætur til Brian Johannessen.

29. janúar 2008
E-1069/2006 Héraðsdómur Reykjaness
Anna M. Karlsdóttir settur héraðsdómari

Stefndi var sýknaður af kröfum stefnanda er lutu að því að viðurkennt yrði að kaupsamningur hefði komist á milli aðila.

28. janúar 2008
S-623/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Anna M. Karlsdóttir settur héraðsdómari

Sýknað var af ákæru um kynferðisbrot.

25. janúar 2008
S-1021/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Ingiríður Lúðvíksdóttir settur héraðsdómari

Sakfellt fyrir skjalafals. Ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

25. janúar 2008
E-1102/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari

Stefndu voru sýknuð af kröfu stefnanda um greiðslu þóknunar vegna milligöngu um sölu á landspildu.

24. janúar 2008
S-1039/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Anna M. Karlsdóttir settur héraðsdómari

Tveir ungir menn sakfelldir fyrir líkamsárás. Sektarrefsing dæmd og annar ákærðu auk þess dæmdur til greiðslu skaðabóta.

24. janúar 2008
S-977/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Ingiríður Lúðvíksdóttir settur héraðsdómari

Sakfellt fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og vörslur fíkniefna. Dæmd sekt og svipting ökuréttar.

24. janúar 2008
S-1141/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari

J var sakfelldur fyrir þjófnað og fíkniefnalagabrot. Með brotum sínum rauf hann skilorð. Gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði skilorðsbundið til þriggja ára.

23. janúar 2008
S-1131/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari

Dæmdur í 5 ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps.

23. janúar 2008
S-1212/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari

Ákærði var fundinn sekur um ölvunar- og sviptingarakstur. Refsing ákveðin sem hegningarauki. Dæmdur til að sæta fangelsi í þrjá mánuði.

22. janúar 2008
S-53/2008 Héraðsdómur Reykjaness
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari

Sakfelldur fyrir fjársvik. Sæti fangelsi í 6 mánuði.

22. janúar 2008
M-52/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Ingiríður Lúðvíksdóttir settur héraðsdómari

Því mótmælt að dómkvaddur yrði matsmaður til að meta hvort athafnir matsþola væru til þess fallnar að fara illa með hest, hrekkja hann, eða meiða. Í úrskurði var talið að matið væri ekki þýðingarlaust, að mælikvarði dýraverndarlaga væri ekki of almennur til þess að leggja mat á það hvort ákvæði þeirra hefðu verið brotin, að matið væri til þess fallið að upplýsa málið og að með dómkvaðningu matsmannsins væri ekki brotið gegn reglunni um hraða málsmeðferð.

21. janúar 2008
S-1211/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari

S var sakfelldur fyrir að aka bifreið sviptur ökurétti. Að sakaferli virtum dæmdur til að sæta fangelsi í þrjá mánuði.

17. janúar 2008
S-978/2007 Héraðsdómur Reykjaness
Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari

A var sakfelldur fyrir ölvunarakstur og akstur undir áhrifum fíkniefna. Hann var einnig sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna. Dæmdur til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar og til greiðslu sektar. Að auki sviptur ökurétti.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða » Dómar

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd

Héraðsdómur Reykjanes