Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Reykjaness

Héraðsdómur Reykjaness starfar samkvæmt lögum nr. 15/1998.  

Afgreiðsla dómstólsins er opin virka daga frá kl. 8.30 til 16:00. Skiptiborðið er opið frá kl. 8.30 til 15.00.

Dómstóllinn hefur aðsetur í dómhúsinu við Fjarðargötu 9, Hafnarfirði. Dómstjóri er Þorgeir Ingi Njálsson.          

Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.

Umdæmi Héraðsdóms Reykjaness er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010.  Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Garðabær, Grindavíkurbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Kópavogsbær, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Álftanes, Sveitarfélagið Garður og Sveitarfélagið Vogar.

Þingstaður: Héraðsdómur Reykjaness, Fjarðargötu 9, Hafnarfirði.

Regluleg dómþing í einkamálum eru haldin hvern miðvikudag kl. 9.00.

Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.

Nýir dómar

2. febrúar 2012
S-1287/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir þjófnað og tilraun til þjófnaðar. Refsing ákveðin 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár. Bótakrafa féll niður vegna útivistar.

2. febrúar 2012
S-1598/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir þjófnað. Skilorðsrof. Refsing ákveðin 5 mánaða fangelsi. Bótakröfu var vísað frá dómi.

2. febrúar 2012
S-66/2012 Héraðsdómur Reykjaness
Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari

Sakfellt fyrir þjófnað. Hegningarauki. Ákærða var ekki gerð sérstök refsing í málinu.

1. febrúar 2012
X-24/2011 Héraðsdómur Reykjaness
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari

Ágreiningur var um afturvirkni laga nr. 151/2010 um endurrútreikning á gengistryggðu láni þar sem skuldaraskipti höfðu orðið á greiðslutímabilinu. Talið var að fyrirmæli 7. mgr. 1. gr. laga nr. 151/2010 um að endurútreikningur skyldi miðaður við þá dagsetningu sem skuldaraskiptin fóru fram, skertu ekki stjórnarskrárbundin eignarétt nýs skuldara, né sviptu hann þeim réttindum og skyldum sem fylgdu veðskuldabréfinu við yfirtöku þess. Var krafa sóknaraðila um að endurútreikningur gagnvart varnaraðila yrði miðaður við yfirtökudag veðskuldabréfsins, tekin til greina.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd

Reykjanesviti