Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Reykjavíkur

Héraðsdómur Reykjavíkur starfar samkvæmt lögum nr. 15/1998.

Afgreiðsla dómstólsins er opin virka daga frá kl. 8.30 til 16.00.  Skiptiborð er opið frá kl. 8.30 til 15.00.

Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.

Dómstóllinn hefur aðsetur í Dómhúsinu við Lækjartorg.  Dómstjóri í leyfi Helga I. Jónssonar er Eggert Óskarsson varadómstjóri.  

Umdæmi Héraðsdóms Reykjavíkur er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010. Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Reykjavík, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.

Regluleg dómþing í einkamálum eru þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10.00. Þingstaður er í dómsal 102 í Dómhúsi Héraðsdóms Reykjavíkur við Lækjartorg. 

Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.

Neyðarnúmer vegna fasteigna Héraðsdóms Reykjavíkur er 852-1992.

 

Nýir dómar

16. maí 2012
E-5861/2010 Héraðsdómur Reykjavíkur
Símon Sigvaldason héraðsdómari

Kaupþing hf. höfðaði mál gegn stefnda og krafðist riftunar þeirrar ákvörðunar fyrrum stjórnar bankans að fella niður ábyrgð stefnda á lánum sem stefndi hafði tekið til kaupa á hlutabréfum í bankanum er hann starfaði hjá honum. Var fallist á kröfur bankans og stefnda gert að greiða þann hluta af láninu er hann bar ábyrgð á.

16. maí 2012
E-3673/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari

Stefnandi ekki talin eiga rétt til frekari greiðslna frá stefnda en hún hafi þegar þegið við starfslokin.

16. maí 2012
E-4425/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari

Stefndi sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu á andvirði nýrrar tölvu og prentara, þar sem samningur málsaðila var skýrður svo að einungis var verið að skifta þeim eignum sem til voru.

16. maí 2012
S-180/2012 Héraðsdómur Reykjavíkur
Arngrímur Ísberg héraðsdómari

Ákærða sýknuð af þjófnaðarbroti.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd