Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Reykjavíkur

Dómar

111
 [1]  2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 ...194 Næstu >>

3. febrúar 2012
E-2983/2010 Héraðsdómur Reykjavíkur
Kolbrún Sævarsdóttir settur héraðsdómari

M dæmd forsjá barns.

2. febrúar 2012
S-1835/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari

Ákærðu sakfelldir fyrir nauðgun.

2. febrúar 2012
X-574/2010 Héraðsdómur Reykjavíkur
Barbara Björnsdóttir settur héraðsdómari

Í málinu var deilt um rétthæð kröfu sóknaraðila við slit varnaraðila. Var kröfum sóknaraðila um að viðurkennt væri að krafa hans væri sértökukrafa, eða til vara forgangskrafa, hafnað.

2. febrúar 2012
E-2199/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Þórður S Gunnarsson settur héraðsdómari

Tryggingafélag dæmt til að greiða eftirlifandi maka bætur úr líftryggingu að fullu. Ekki var fallist á rétt tryggingafélagsins til að skerða bætur vegna meintra rangra eða ófullnægjandi upplýsinga tryggingartaka við töku líftryggingarinnar. Fallist var á með stefnanda málsins að leysa bæri ágreining aðila á grundvelli laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga, sem í gildi voru þegar tryggingartaki lést, en ekki laga nr. 20/1954 um vátryggingarsamninga, sem í gildi voru þegar til líftryggingarinnar var stofnað.

31. janúar 2012
E-14165/2009 Héraðsdómur Reykjavíkur
Sigríður Hjaltested settur héraðsdómari

Stefndu sýknuð af kröfum stefnanda vegna meints fjártjóns sem hún taldi sig hafa orðið fyrir vegna persónulegra mistaka stefndu S við eignastýringu. Fjártjónið taldi stefnandi felast í lakari ávöxtun á eignasafni stefnanda en hefði getað orðið. Stefndi Í var sýknaður á grundvelli aðildarskorts en stefnda S þar sem ósannað var að hún hefði fengið tiltekin fyrirmæli sem henni hafi borið að framfylgja.

30. janúar 2012
E-273/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Kolbrún Sævarsdóttir settur héraðsdómari

Stefndi B dæmdur til að greiða stefnanda skaðabætur vegna tjóns sem stefnandi varð fyrir vegna líkamsárásar B á hendur honum. Stefndi A, sem jafnframt tók þátt í líkamsárásinni, var hins vegar sýknaður af kröfum stefnanda þar sem tjón stefnanda gat ekki talist sennileg afleiðing af háttsemi A. Lögmanni gerð réttarfarssekt vegna háttsemi við aðalmeðferð.

30. janúar 2012
S-1965/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Arngrímur Ísberg héraðsdómari

Ákærði dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hegningar-fíkniefna- og vopnalagabrot.

27. janúar 2012
E-7410/2010 Héraðsdómur Reykjavíkur
Sigríður Hjaltested settur héraðsdómari

Stefndi dæmdur til greiðslu skaðabóta vegna þjónustu sem talin var gölluð.

27. janúar 2012
E-1420/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Ásmundur Helgason héraðsdómari

Máli stefnanda á hendur stefnda var vísað frá dómi þar sem stefnandi hafði ekki lengur lögvarða hagsmuni af því að fá úrlausn kröfu sinnar um ógildingu úrskurðar ríkistollanefndar.

27. janúar 2012
E-47/2010 Héraðsdómur Reykjavíkur
Eggert Óskarsson héraðsdómari

Stefndi, íslenska ríkið, var sýknað af kröfu stefnanda um að ógiltur yrði úrskurður ríkisskattstjóra varðandi skattalega heimilisfesti og skattskyldu stefnanda.

27. janúar 2012
X-82/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Barbara Björnsdóttir settur héraðsdómari

Fallist var á að sóknaraðili ætti almenna kröfu samkvæmt 113. gr. laga nr. 21/1991 við slitameðferð varnaraðila.

27. janúar 2012
E-6395/2010 Héraðsdómur Reykjavíkur
Ásmundur Helgason héraðsdómari

Stefndi, Samkeppniseftirlitið, var sýknaður af kröfu stefnanda, Símans hf., um ógildingu sektarákvörðunar áfrýjunarnefndar samkeppnismála vegna brota sem stefndi taldi stefnanda hafa gerst sekan um á 5. og 7. töluliðum í skilyrðum samkeppnisráðs fyrir samruna stefnanda og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. Sektin var hins vegar lækkuð þar sem dómurinn taldi ekki liggja fyrir að stefnandi hefði gerst brotlegur við 7. tölulið skilyrðanna.

26. janúar 2012
E-2691/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Hrannar Már S. Hafberg settur héraðsdómari

Stefnda dæmt til greiðslu skaðabóta vegna óheimillar birtingar mynda í eigu stefnenda í dagblaði. Þá var stefnda gert að birta forsendur og niðurstöður dómsins í blaðinu.

26. janúar 2012
S-5/2012 Héraðsdómur Reykjavíkur
Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari

Akærðu sakfelldir fyrir skjalafals og fjársvik.

26. janúar 2012
S-1649/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Arngrímur Ísberg héraðsdómari

Ákærði dæmdur í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi auk greiðslu skaðabóta fyrir hegningarlagabrot.

26. janúar 2012
E-4204/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari

Málinu vísað frá ex officio.

25. janúar 2012
S-1703/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari

Karlmaður og kona dæmd til 18 mánaða fangelsisvistar fyrir rán, þjófnaði, gripdeildir o.fl. Karlmaðurinn var sýknaður að hluta af ákærum og frá refsingu hans dregst 90 daga gæsluvarðhaldsvist.

25. janúar 2012
S-1902/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.

25. janúar 2012
S-2/2012 Héraðsdómur Reykjavíkur
Pétur Guðgeirsson héraðsdómari

Ákærði dæmdur til 5 mánaða fangelsisvistar fyrir þjófnaði og gripdeild. Skaðabótakröfum í málinu var vísað frá dómi.

25. janúar 2012
E-2019/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Jón Finnbjörnsson héraðsdómari

Ríkisstarfsmanni ákveðnar skaðabætur vegna ólögmætrar uppsagnar úr starfi. Hafnað kröfu hans um miskabætur.

 [1]  2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 ...194 Næstu >>

Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða » Dómar

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd