Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Reykjavíkur

Héraðsdómur Reykjavíkur starfar samkvæmt lögum nr. 15/1998.

Afgreiðsla dómstólsins er opin virka daga frá kl. 8.30 til 16.00.  Skiptiborð er opið frá kl. 8.30 til 15.00.

Upplýsingar um dómsmálagjöld og reikningsnúmer má finna hér.

Dómstóllinn hefur aðsetur í Dómhúsinu við Lækjartorg. 

Dómstjóri er Ingimundur Einarsson.

Umdæmi Héraðsdóms Reykjavíkur er ein dómþinghá, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 1109/2010. Eftirtalin sveitarfélög heyra til umdæmis hans: Reykjavík, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.

Regluleg dómþing í einkamálum eru þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10.00. Þingstaður er í dómsal 102 í Dómhúsi Héraðsdóms Reykjavíkur við Lækjartorg. 

Hlé eru á reglulegum dómþingum í einkamálum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum ár hvert. Þá falla regluleg dómþing í einkamálum niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.

Neyðarnúmer vegna fasteignar Héraðsdóms Reykjavíkur er 852-1992.

Nýir dómar

17. maí 2013
E-823/2011 Héraðsdómur Reykjavíkur
Ásmundur Helgason héraðsdómari

Komist var að þeirri niðurstöðu að ákvarðanir ÁTVR, þar sem hafnað var að kaupa af stefnanda tvær áfengistegundir sem innihéldu koffín, hafi ekki haft viðhlítandi lagastoð. Staðfesting fjármálaráðuneytisins á þessum ákvörðunum var því felld úr gildi auk þess sem stefnanda voru dæmdar skaðabætur úr hendi íslenska ríkisins.

17. maí 2013
E-57/2012 Héraðsdómur Reykjavíkur
Kolbrún Sævarsdóttir héraðsdómari

Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda skuld samkvæmt fimm afleiðusamningum.

17. maí 2013
E-2431/2012 Héraðsdómur Reykjavíkur
Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari

Ágreiningur málsins laut að þremur lánssamningum. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að fyrsta lánið væri gilt erlent lán. Hin tvö hafði stefndi, í kjölfar dóma Hæstaréttar, endurreiknað. Ekki var talið að stefnandi ætti frekari kröfur á stefnda. Sýkna.

16. maí 2013
E-3789/2012 Héraðsdómur Reykjavíkur
Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari

Málinu var vísað frá dómi þar sem talið var að sama sakarefni hefði áður verið borið undir dóminn.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd