Fréttir Héraðsdómur Reykjavíkur
24.1.2012
Dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur í leyfi
Setning Helga I. Jónssonar, dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, sem dómara við Hæstarétt Íslands hefur verið framlengd frá 1. febrúar til og með 31. maí 2012. Á meðan gengir Eggert Óskarsson varadómstjóri embætti dómstjóra við Héraðsdóm Reykjavíkur.
25.11.2011
Dómari settur við Héraðsdóm Reykjavíkur
14.11.2011
Rekstrar- og mannauðsstjóri við Héraðsdóm Reykjavíkur
14.11.2011
Dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur í leyfi
Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, hefur verið settur dómari við Hæstarétt Íslands frá 10. nóvember til og með 31. janúar 2012. Á meðan mun Eggert Óskarsson varadómstjóri gegna embætti dómstjóra við Héraðsdóm Reykjavíkur.
4.10.2011
Dómari settur við Héraðsdóm Reykjavíkur
1.9.2011
Nýr héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjavíkur
Halldór Björnsson héraðsdómari hefur fengið flutning til Héraðsdóms Reykjavíkur frá og með 1. september 2011. Halldór var dómstjóri við Héraðsdóm Austurlands.
1.9.2011
Dómarar settir við Héraðsdóm Reykjavíkur
Barbara Björnsdóttir hefur verið sett í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. september 2011 til og með 29. febrúar 2012 í leyfi Ingveldar Einarsdóttur, héraðsdómara. Einnig hefur Hrannar Már Sigurðsson Hafberg verið settur í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 5. september til og með 31. desember 2011 í leyfi Sigríðar Ingvarsdóttur. Þá hefur og setning Kobrúnar Sævarsdóttur verið framlengd frá og með 1. september til og með 31. desember 2011.
4.4.2011
Dómari settur við Héraðsdóm Reykjavíkur
Þórður S. Gunnarsson, hæstaréttarlögmaður og aðjúnkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík, hefur verið settur í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. apríl 2011 til og með 29. febrúar 2012 í leyfi Páls Þorsteinssonar, héraðsdómara.
3.8.2010
Dómari settur við Héraðsdóm Reykjavíkur
Kolbrún Sævarsdóttir, saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara, hefur verið sett í embætti héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur frá og með 1. september 2010 til og með 31. ágúst 2011 í leyfi Jónasar Jóhannssonar, héraðsdómara.
Heimasíður dómstólanna
Leit
Mynd











