Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Reykjavíkur

Um Héraðsdóm Reykjavíkur

Með lögum nr. 92/1989 um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, sem tóku gildi 1. júlí 1992, var lagður grunnur að nýrri skipan dómstóla og framkvæmdavalds í héraði. Var að því tilefni gerð heildarendurskoðun á íslenskri löggjöf um dómstóla og réttarfar og hún sniðin að hinni breyttu dómstólaskipan. Fyrir gildistöku laganna voru dómstólarnir í Reykjavík fjórir; Borgardómur Reykjavíkur, Sakadómur Reykjavíkur, Sakadómur í ávana- og fíkniefnamálum og Borgarfógetaembættið. Með lögunum voru þessir dómstólar sameinaðir í einn dómstól, Héraðsdóm Reykjavíkur. Mælt var fyrir um að dómarar við dómstólinn yrðu 21.

Á Íslandi eru tvö dómstig. Fyrra dómstigið er í héraði og eru héraðsdómstólarnir 8 að tölu; Héraðsdómur Reykjavíkur, Héraðsdómur Reykjaness, Héraðsdómur Suðurlands, Héraðsdómur Norðurlands eystra, Héraðsdómur Vesturlands, Héraðsdómur Vestfjarða, Héraðsdómur Norðurlands eystra og Héraðsdómur Austurlands. Tóku dómstólarnir til starfa 1. júlí 1992. Síðara dómstigið, áfrýjunardómstig, er í Hæstarétti.

Héraðsdómur Reykjavíkur er langstærsti dómstóll landsins. Þar eru nú starfandi 22 dómarar í 21½ stöðugildi. Næststærsti héraðsdómstóllinn er Héraðsdómur Reykjaness þar sem starfa 7 dómarar. Í Hæstarétti eru 9 dómarar.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd

Reykjavík - séð yfir tjörnina og miðbæinn