Fréttir Héraðsdómur Suðurlands
15.5.2010
Nýir dómarar við Héraðsdóm Suðurlands
Dómsmálaráðherra hefur skipað þau Ragnheiði Thorlacius og Sigurð Gísla Gíslason héraðsdómara við Héraðsdóm Suðurlands frá og með 15. maí 2010. Ragnheiður starfaði áður sem framkvæmdarstjóri fjölskyldumiðstöðvar sveitarfélagsins Árborgar og Sigurður Gísli starfaði sem hæstaréttarlögmaður hjá embætti ríkislögmanns.
15.5.2009
Tímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Lög um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði tekur gildi í dag, 15. maí.
15.5.2009
Greiðsluaðlögun óveðtryggðra skulda
Með lögum nr. 24/2009 um breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991, sem tóku gildi 1. apríl sl., var einstaklingum gert kleift að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar við kröfuhafa sína með aðstoð umsjónarmanns. Þau lög taka til annarra krafna en veðskulda.
5.7.2006
Nýr héraðsdómari
Ástríður Grímsdóttir hefur verið skipuð héraðsdómari við Héraðsdóm Suðurlands.
20.3.2006
Birting héraðsdóma á netinu
Nú er í fyrsta sinn hafin almenn birting héraðsdóma á netinu. Hæstiréttur Íslands hefur árum saman birt dóma sína á heimasíðu sinni og auk þess hefur Héraðsdómur Norðurlands eystra birt dóma sína lengi.
Heimasíður dómstólanna
Leit
Mynd











