Beint á leiðarkerfi vefsins
Héraðsdómur Vestfjarða

Héraðsdómur Vestfjarða starfar samkvæmt lögum nr. 15/1988.
Skrifstofa dómstólsins er opin frá kl. 9.00 til 15.30 alla virka daga að Hafnarstræti 9, Ísafirði.
Dómstjóri er Kristinn Halldórsson.

Umdæmi Héraðsdóms Vestfjarða skiptist í tvær dómþinghár,
sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 395/1998.

Eftirtalin sýsluumdæmi heyra til umdæmis hans:
a. Umdæmi sýslumannanna í Bolungarvík, á Hólmavík og á Ísafirði.
Þingstaður: Héraðsdómur Vestfjarða, Hafnarstræti 9, Ísafirði.
Regluleg dómþing eru 1. og 3. miðvikudag hvers mánaðar kl. 10.00.
b. Umdæmi sýslumannsins á Patreksfirði.
Þingstaður: Skrifstofa sýslumanns, Aðalstræti 92, Patreksfirði.
Regluleg dómþing eru haldin 2. miðvikudag kl. 14.00, mánuðina febrúar, apríl, júní, september og nóvember.

Hlé eru á reglulegum dómþingum mánuðina júlí og ágúst svo og frá 20. desember til 6. janúar, að báðum dögum meðtöldum ár hvert. Þá falla regluleg dómþing niður á lögboðnum frídögum, sbr. lög nr. 88/1971.

Nýir dómar

16. júlí 2010
E-31/2010 Héraðsdómur Vestfjarða
Kristinn Halldórsson héraðsdómari

Stefndu dæmdir til greiðslu hluta skuldar einkahlutafélags við stefnanda á grundvelli ábyrgðaryfirlýsingar í skuldabréfi. Annar stefndu hélt uppi vörnum í málinu sem ekki komust að vegna ákvæða XVII. kafla laga nr. 91/1991.

16. júlí 2010
Q-2/2010 Héraðsdómur Vestfjarða
Kristinn Halldórsson héraðsdómari

Ákvörðun skiptastjóra, sem fer með opinber skipti málsaðila, þess efnis að fela matsmanni að meta verðmæti eignarhluta þeirra í félögunum A og B, var staðfest.

24. júní 2010
E-210/2009 Héraðsdómur Vestfjarða
Kristinn Halldórsson héraðsdómari

Talið var sannað að samningur hefði komist á milli málsaðila um sölu stefnanda á þremur iðnaðarhurðum til stefnda. Þá var talið að afpöntun stefnda hefði borist stefnanda of seint. Stefnda var því dæmt til að greiða stefnanda söluverð hurðanna að fullu.

18. júní 2010
Z-1/2010 Héraðsdómur Vestfjarða
Kristinn Halldórsson héraðsdómari

Ágreiningsmáli vegna nauðungarsölu vísað frá dómi þar sem sóknaraðili var ekki talinn njóta réttar skv. 2. mgr. 73. gr. laga nr. 90/1991 til að leita bréflega úrlausnar héraðsdómara um ákvörðun sýslumanns.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd