Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki hérðasdóms vesturlands

Fréttir Héraðsdómur Vesturlands

16.1.2012

Dómstjóri settur við Héraðsdóm Vesturlands

Allan V. Magnússon héraðsdómari hefur verið settur dómstjóri við Héraðsdóm Vesturlands frá og með 15. janúar 2012.

1.11.2011

Dómstjóri Héraðsdóms Vesturlands í leyfi

Benedikt Bogason, dómstjóri Héraðsdóms Vesturlands, verður í leyfi frá dómstólnum frá 1. nóvember til og með 31. desember 2014 en hann hefur verið settur dómari við Hæstarétt Íslands þann tíma. Þar til gengið hefur verið frá setningu nýs dómstjóra við dómstólinn mun Hjörtur O. Aðalsteinsson, dómstjóri við Héraðsdóm Suðurlands, sinna starfi dómstjóra við Héraðsdóm Vesturlands samhliða starfi sínu.

15.5.2009

Tímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna

Lög um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði tekur gildi í dag, 15. maí.

15.5.2009

Greiðsluaðlögun óveðtryggðra skulda

Með lögum nr. 24/2009 um breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991, sem tóku gildi 1. apríl sl., var einstaklingum gert kleift að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar við kröfuhafa sína með aðstoð umsjónarmanns. Þau lög taka til annarra krafna en veðskulda.

5.2.2009

Dómstjóri skipaður til næstu fimm ára

Benedikt Bogason hefur verið skipaður til að gegna áfram embætti dómstjóra við Héraðsdóm Vesturlands til næstu fimm ára, frá og með 1. desember 2008.

20.3.2006

Birting héraðsdóma á netinu

Nú er í fyrsta sinn hafin almenn birting héraðsdóma á netinu.  Hæstiréttur Íslands hefur árum saman birt dóma sína á heimasíðu sinni og auk þess hefur Héraðsdómur Norðurlands eystra birt dóma sína lengi. 

10.3.2006

Settur dómstjóri í 3 mánuði

Dómsmálaráðherra hefur að tillögu Benedikts Bogasonar dómstjóra ákveðið að setja Kristin Halldórsson aðstoðarmann dómara, í stöðu dómstjóra við Héraðsdóm Vesturlands í leyfi Benedikts frá 15. mars til 15. júní 2006.


Heimasíður dómstólanna


Greiðsluaðlögun einstaklingaTímabundin greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna
Umdæmaskipting héraðsdómstólanna

Slóðin þín:

Forsíða » Fréttir

Stjórnborð

Minnka leturLetur í sjálfgefna stærðStækka leturHamur fyrir sjónskerta og lesblindaHafa sambandPrenta þessa síðuVeftré

Mynd

Héraðsdómur Vestfjarða