Matsmannanámskeið

Dómstólasýslan og Lögmannafélag Íslands standa fyrir námskeiði fyrir dómkvadda matsmenn. Farið verður yfir hlutverk matsmanna og starf þeirra frá dómkvaðningu og þar til þeir skila matsgerð og/eða mæta fyrir dóm. Þá verður farið yfir ákvæði einkamálalaga sem varða störf matsmanna og samningu matsgerða, undirbúning matsfunda, uppsetningu matsgerða og störf á vettvangi.

Í lok síðari námskeiðsdags verður haldið í Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem Kristrún Kristinsdóttir héraðsdómari og Lilja Rún Sigurðardóttir aðstoðarmaður dómara munu upplýsa nánar um samskipti dómkvaddra matsmanna við dómstólana og svara spurningum.

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa verið matsmenn eða vilja gefa kost á sér sem matsmenn fyrir dómi á sínu sérsviði, s.s. iðnaðarmönnum, tæknifræðingum, verkfræðingum, læknum, sálfræðingum, viðskiptafræðingum og endurskoðendum.

Með námskeiðinu fylgja ítarlegar leiðbeiningar fyrir dómkvadda matsmenn sem jafnframt hafa að geyma áhugaverða dóma sem snúa að störfum matsmanna.

Kennarar Viðar Lúðvíksson lögmaður hjá Landslögum og Ragnar Ómarsson byggingafræðingur á Verkfræðistofunni Verkís, formaður Matsmannafélags Íslands.
Staður Kennslustofa Lögmannafélags Íslands, Álftamýri 9, 108 Reykjavík og Héraðsdómur Reykjavíkur.

Tími Alls 6 klst. Þriðjudagur 15. maí kl. 13.00-16.00 og miðvikudagur 16. maí kl. 13.00-16.00
Verð kr. 47.000,- Flest stéttarfélög taka þátt í kostnaði námskeiða.

Nánari upplýsingar gefur Eyrún Ingadóttir í síma 568 5620 og á netfangið eyrun@lmfi.is

Skráning hér.