Guðrún Sesselja Arnardóttir skipuð héraðsdómari

Dómsmálaráðherra hefur skipað Guðrúnu Sesselju Arnardóttur í embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur, frá og með 1. september 2023.

Guðrún Sesselja lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 2000 og fyrir Hæstarétti Íslands 2009. Frá ársbyrjun 2015 hefur hún starfað sem lögmaður hjá embætti ríkislögmanns en þar áður starfaði hún á lögmannsstofu árin 2002-2014. Á lögmannsferli sínum hefur Guðrún Sesselja flutt mikinn fjölda mála, jafnt einkamál sem sakamál, fyrir öllum dómstigum hér á landi auk þess sem hún hefur komið að flutningi mála fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. Af öðrum störfum hennar má nefna að hún starfaði hjá embætti ríkissaksóknara árin 1997-2002 og sat í yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis 2013-2017. Þá hefur hún sinnt kennslu í lögfræði við íslenska háskóla sem og á námskeiðum til öflunar málflutningsréttinda fyrir héraðsdómi.