Á K V Ö R Ð U N
dómstólasýslunnar um skjöl sem berast skuli dómstóli í gegnum réttarvörslugátt

1. Öll skjöl í eftirtöldum málum skulu berast Landsrétti um réttarvörslugátt:
    a. Kærðum sakamálum þar sem krafist er endurskoðunar úrskurða í rannsóknarmálum samkvæmt 1. mgr. 102. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð     sakamála.

2. Öll skjöl í eftirtöldum málum skulu berast héraðsdómstólum um réttarvörslugátt:
    a. Rannsóknarmálum samkvæmt 1. mgr. 102. gr. laga nr. 88/2008.
    b. Ákærumálum sem eingöngu lúta að umferðalagabrotum.

3. Í öðrum ákærumálum en þeim sem mælt er fyrir um í b. lið 2. mgr. er ákæruvaldinu heimilt að senda ákæru ásamt öðrum skjölum til Afrit af     Ákvörðun dómstólasýslunnar um skjöl sem berast skuli dómstóli í gegnum réttarvörslugátthéraðsdómstóls um réttarvörslugátt þegar það er     tæknilega mögulegt. Skulu þá öll skjöl verjanda og réttargæslumanns einnig send í gegnum réttarvörslugátt.

4. Ákvörðun þessi er tekin á grundvelli 2. mgr. b-liðar 3. gr. og 2. mgr. c-liðar 3. gr. reglna dómstólasýslunnar um form, afhendingarmáta og     staðfestingu skjala í dómsmálum nr. 1662/2024.

                                                                                           Þannig samþykkt, 26. september 2025.


                                                                                                            Kristín Haraldsdóttir,
                                                                                            framkvæmdastjóri dómstólasýslunnar