Á K V Ö R Ð U N
dómstólasýslunnar um skjöl sem berast skuli dómstóli í gegnum réttarvörslugátt

 

1.    Öll skjöl í eftirtöldum málum skulu berast Landsrétti um réttarvörslugátt:
        a. Kærðum sakamálum þar sem krafist er endurskoðunar úrskurða í rannsóknarmálum samkvæmt 1. mgr. 102. gr. laga nr. 88/2008 um         meðferð sakamála.

2. Öll skjöl í eftirtöldum málum skulu berast héraðsdómstólum um réttarvörslugátt:
        a. Rannsóknarmálum samkvæmt 1. mgr. 102. gr. laga nr. 88/2008. 
        b. Ákærumálum sem eingöngu lúta að umferðalagabrotum. 

3. Í öðrum ákærumálum en þeim sem mælt er fyrir um í b. lið 2. mgr. er ákæruvaldinu heimilt að senda ákæru ásamt öðrum skjölum til         héraðsdómstóls um réttarvörslugátt þegar það er tæknilega mögulegt. Skulu þá öll skjöl verjanda og réttargæslumanns einnig send í         gegnum réttarvörslugátt. 

4. Ákvörðun þessi er tekin á grundvelli 2. mgr. b-liðar 3. gr. og 2. mgr. c-liðar 3. gr. reglna dómstólasýslunnar um form, afhendingarmáta og         staðfestingu skjala í dómsmálum nr. 1662/2024. 

 

 Þannig samþykkt, 26. september 2025.

 

 Kristín Haraldsdóttir,

framkvæmdastjóri dómstólasýslunnar